Rakel Björk

Sunday, January 22, 2006


Æfingabúðir kórsins voru í Skálholti um helgina. Þetta eru í raun tvenns konar æfingabúðir - æfum söng og svo drykkjuvöðvana. Lagt var af stað seint á föstudeginum. Að venju festu nokkrir bílar sig en það reddast nú alltaf. Á laugardeginum var svo söngæfing frá 10-17 og tók svo við stíf drykkjuæfing sem stóð mislengi en ég held að last man standing hafi farið að sofa um sjö. Kvöldvakan var að sjálfsögðu á sínum stað. Það verður nú að segjast að tenórarnir koma alltaf með snilldaratriði - á myndinni sést Hannes standandi sem ljósmyndarinn i the tenors next top modle. Fleiri myndir eru á myndasíðunni fotki.com/rakelbjork En annars þá var þetta bara gleði gleði gleði og þakka ég bara fyrir mig.
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com