Rakel Björk

Sunday, April 23, 2006

Núna síðustu daga hefur verið alveg brjáluð umferð á flugvellinum. Það er cirrusráðstefna og 28 stykki á svæðinu ásamt fullt af öðrum vélum. Þessa mynd tók ég í morgun út um gluggann á vélinni þar sem ég beið nr.2 við brautarenda með fjórar vélar fyrir aftan mig þ.e. alls sex flugvélar að bíða eftir að komast í loftið. Þegar ég kom inn til lendingar þá þurfti flugumferðastjórinn að senda mig í go-around út af traffic og þegar ég lenti þá var ég beðin um að spítta bara áfram yfir brautina. Mér finnst rosagaman þegar ég er send svona fram og til baka. Gærdagurinn var alveg svakalegur. Þá var þurfti að skipta um braut í notkun vegna vinds og ég send út og suður. Ég held að flugumferðarstjórunum finnist bara best að láta litlu cessnuna breyta til. En þeir hafa samt alltaf þakkað mér fyrir hjálpina :)

Ætlaði að fljúga meira en einn tíma í dag en hinn gaurinn sem ég deili vélinni með breytti slottinu sínu svo ef ég færi þá þyrfti ég að lenda i myrkri. Ég er með næturáritun en hef bara ekki notað hana svo lengi. En þetta er allt í lagi því greyið þurfti að bíða eftit vélinni í tvo tíma um daginn þegar ég þurfti að fá vélvirkja til að skoða hana.

Flugtímar 127,5
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com