Rakel Björk

Tuesday, January 31, 2006

Við Ragnheiður fórum í bæinn á laugardaginn. Ég drakk ekkert nema vatn en hef samt aldrei verið jafnþunn á ævi minni! Hugsa að reykurinn hafi bara farið svona illa í mig. Sunnudagurinn fór bara í það að sofa hjá Howard (sófanum okkar). Ég þurfti svo að drösla mér í vinnuna um kvöldið. Eftir vinnuna fórum við Vala á kaffihús - ji hvað ég var farin að sakna hennar, ekki búin að hitta hana í rúman mánuð því hún var í Brasilíu. Hún keypti handa mér snilldarlyklakippu - flugvél með klukku. Svo kjöftuðum við þar til kaffihúsinu var lokað. Svo gaman :)
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com