Árshátíð kórsins var um helgina og vahá hvað það var gaman. Við sem sátum á mínu borði fórum á kostum og hlógum svo mikið að okkur var farið að verkja í allan líkamann. Við hlógum svo mikið að við tókum ekki einu sinni eftir því þegar röðin var komin að okkur að ná í matinn svo það var bara tekið fram úr okkur.
Á gólfinu til hliðar við borðið var grænt filtteppi. Það hafði rifnað örlítið upp úr því svo það sást í hvítt. Við Gunni Þ.tókum því hnífana okkar og eitt ber og fórum í mini-golf, þokkalega rústaði ég honum ;) Skrautberin á borðinu fengu flugferðir í átt að veislugestum með aðstoð gaffals en stærri ávöxtunum var af og til skipt út þar til við enduðum með kókoshnetu sem síðan var smölluð á gólfinu - hvernig öðru vísi áttum við að opna hana? Hlakka til að sjá myndirnar...
Ég fékk að mæta seint í vinnuna til að geta flogið. Finnst ekki betri flugdagur en er í dag. Heiðskýrt og kalt, reyndar var alveg skítkalt í vélinni því takkinn sem þarf að toga út til að heitt loft streymi inn, rennur alltaf inn aftur vegna titringsins í vélinni. Puttarnir á mér voru svo kaldir að ég var alveg fjólublá undir nöglunum en liturinn á naglalakkinu gerði þær dökkgular - ógeðslegur litur ,eins og ég væri búin að bora svo mikið í nefið að neglurnar væru orðnar litaðar af því. En þetta var geggjað :D

<< Home