Rakel Björk

Thursday, February 02, 2006

Ásdís skorði á mig í spænska bloggleiknum þar sem mar á að telja upp fimm ávana:
1. Þegar ég fæ mér pylsu þá set ég alltaf allt á í ákveðinni röð. Fyrst fer tómatsósan í brauðið, svo set ég steikta laukinn. Með því að setja tómatsósuna fyrst þá eru minni líkur á að steikti laukurinn fari á flakk. Svo kemur pylsan og ein rönd af remúlaði ofan á hana. Ef ég er með sinnep líka þá er það í mjórri rönd við hliðina á remúlaðinu.

2.Þegar ég sker ost þá er ég sífellt að snúa honum. Vil hafa hann skorinn jafnt og þoli ekki þegar hann verður skakkur.

3. Ég syng með öllum stefum í útvarpinu t.d. létt nítí´og sex komma sjööö. Það versta er að ég tek ekki eftir því þegar ég geri þetta og hefur það oft vakið kátínu hjá fólki í kringum mig - sérstaklega ef ég geri þetta ósjálfrátt þar sem ég bíð í röð.

4. Þegar ég syng þá rugga ég hausnum. Þaðan kemur viðurnefnið Waggelkopf. Málið er bara að ég er alltaf syngjandi og því alltaf að þessu. Fólk þekkir mig langar leiðir þegar ég labba á því þá er ég oft syngjandi og já waggelkopfandi.

5. Ég man ekki eftir fleiri hlutum en skora á fólk að koma með fimmta liðinn - hversu vel þekkiðið mig nú?
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com