Það voru svona skýjahnoðrar næstum alla leiðina mína í dag. Fallegt að horfa á þá þegar mar flýgur fyrir ofan þá.Brilleraði í dönskunni minni í gær. Var ásamt tvem dönum að borða á Tikis sem er veitingastaðurinn við flugvöllinn. Ég sagði þeim að ég ætlaði að fá mér kjúklingasalat og med det samme mjálmuðu þeir báðir mjááá! Ég leit forviða á þá og þeir sögðu mér að ég hefði verið að biðja um kettlingasalat því ég bar orðið kylling vitlaust fram. Algjör snillld og erum við Árni sem var líka með okkur búin að hlægja mikið af þessu. B.t.w. Árni kláraði CPL prófið sitt í gær með stæl og er því núna orðinn atvinnilaus atvinnuflugmaður. Til hamingju með það Árni minn!!!
Flugtímar 135,1

<< Home