Rakel Björk

Tuesday, February 07, 2006

Stundum verður alveg ofurrólegt í vinnunni og fer ég þá á bloggfyllerí. Núna er ég að dunda mér við að lesa gömul blogg frá mér og rakst á þetta:

Thelma fékk bílbróf í gær -frekar skrítið. Í gærkvöldi hringdi hún í mig og bað mig um að koma með sér í ísbíltúr og á fyrsta rúntinn sinn. Að sjálfsögðu sagði ég já og jafnframt að ég ætlaði bara að taka mig til og reyna að vera tilbúin þegar hún kæmi. Svo hljóp ég niður í geymslu, tók fram allar línuskautahlífar sem ég fann, setti upp hjálminn og fór út til Thelmu. Henni fannst þetta bara fyndið =) Hún var reyndar alveg merkilega góður bílstjóri, sérstaklega miðað við fyrsta daginn í umferðinni.

Vá hvað ég get verið mikill púki!
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com