Rakel Björk

Thursday, March 02, 2006

Jæja viðtalið í bandaríska sendiráðinu gekk bara vel - enda tilraun tvö. Þau sem þekkja mig vita að ég er alveg ágætlega samviskusöm. Ég hafði margathugað hvaða pappírar það væru sem ég þyrfti að hafa með mér - bæði með því að fara á heimasíðu sendiráðsins og svo sendi skólinn mér líka check-lista. Þessir tveir listar voru alveg eins. Ég mætti svo í sendiráðið á miðvikudagsmorgni einum og hálfum tíma áður en viðtalið átti að fara fram - því það stóð á netinu, er til að hafa tíma til að fylla út pappíra. Öryggisverðirnir voru hissa að sjá mig svona snemma og þegar ég sagði þeim að ég hefði lesið þetta á netinu sögðu þeir bara andsk... stendur sú vitleysa enn. Þar sem biðstofan var full - það mega víst bara vera fimm í henni í einu - þá varð ég bara að bíða úti í skítakulda þar til e-h væri búinn. Svo fæ ég að fara inn og segi við konuna að ég eigi víst að fylla út þessa pappíra og hún svarar - ertu ekki búin að því!! Þá verður þú bara að koma aftur seinna! Þú þarft að koma með þetta og hitt og taldi upp hluti sem voru ekki á listanum mínum. Ég spurði hvaða lista hún væri með og hvort hann væri á netinu - auðvitað var hann það - en það er sko löng leið að honum þar og þá á alltaf að smella á allt hægra megin á síðunni en ég hafði alltaf smellt á allt vinstra megin og fékk því ekki upp þennan lista... Ég veit ekki alveg hvort ég á að taka þessu pappírsklúðri öllu sem að ég sé bara svona ógeðslega heimsk... meina geta þetta allir aðrið án nokkura vandkvæða?
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com