Rakel Björk

Friday, April 28, 2006


Pete, Írinn sem býr með mér, átti afmæli í gær og Jói náði multi-engineprófinu sínu svo farið var út að borða á Red Lobster. Þegar inn á staðinn var komið var búr með humrum svo hægt var að velja hvern þeirra átti að elda. Ég get ekki hugsað mér að benda á einn þeirra lifandi í búrinu og segja - þig ætla ég að borða í kvöld! Það er samt soldið skrítið því mig dauðlangar að prófa að fara á skytterí og þá er mar náttla að gera nákvæmlega það sama.

Allir byrjuðu á að kaupa sér áfengi, nema ég sem pantaði bara cocoa cola enda með pantaða vél klukkan átta næsta morgun. Svo rakst ég á ferlega girnilega margarítu á drykkjarlistanum og ákvað eftir smá umhugsun og tilsögn að prófa hana. Þjónninn spurði hvort ég vildi ekki fá stóra því hún væri bara tvem dollurum dýrari en sú litla. Jú jú sagði ég og stuttu seinna kemur þjónninn með þessa stóóóóru margarítu sem sést á myndinni. Jarðaberjamargaríta með krapi er mjög góð.

Við vorum komin heim klukkan tíu um kvöldið og ákvað ég að beila á eftirpartíinu og fara beint að sofa til að vera hress morguninn eftir. Þegar ég mætti svo í skólann daginn eftir komst ég að því að ekki verður hægt að fljúga vélinni næstu daga því hún þarf að fara í 100 tíma skoðun. Ég verð því í algjöru fríi þessa hlegi.

Ég veit ekki alveg hvort mar á að segja frá þessu til að valda ekki áhyggjum en það varð flugslys á vellinum í dag. Háþekju stélhjólsvél var að lenda og fékk vindhviðu sem feykti henni á hliðina svo annar vængurinn brotnaði. Það komust þó allir heilir frá slysinu. Það var mjög hvasst í dag og gustaði þó nokkuð. Háþekju stélhjólsvélar eru mjög viðkvæmar við slíkar aðstæður. En ég get alveg fullvissað ykkur um það að ég fer ekki í loftið ef mér líst ekki á veðrið. (Háþekjur eru með vængina fyrir ofan gluggana en lágþekjur með vængina fyrir neðan þá).

Flugtímar 136,1
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com