Ég skoppaði niður til Palla og Ingunnar í gærkvöldi til að kíkja í heimsókn. Var í voða góðu skapi. Bankaði á dyrnar og gekk syngjandi inn... halló halló nei er þetta þú hvað segiru nú trallallala... svo þegar ég sný mér við eftir að hafa lokað dyrunum sé ég að þau eru ekki ein. Æði! Þarna stóð ég, á Hello Kitty flugvélanáttbuxum innan undir flauelispilsinu í ullarsokkum og með teppi, fyrir framan yfirflugstjóra JetX. Flott Rakel! Þeir strákarnir voru svo uppteknir af bíómyndinni sem þeir voru að horfa á að ég vona að þeir hafi bara tekið sem minnst eftir mér og mínum tilþrifum... :)
Contributors
Previous Posts
- Rakst líka á þetta á gamla blogginu mínu. Lambakjö...
- Stundum verður alveg ofurrólegt í vinnunni og fer ...
- Æi það virðast vera álög á mér þegar það kemur að ...
- Ásdís skorði á mig í spænska bloggleiknum þar sem ...
- Jæja þá er þetta loksins að virka... Er búin að ve...
- Hmm... þetta blogg er stórfurðulegt. Það var ekki ...
- Æ ég fæ commentkerfi bloggsins ekki til að virka -...
- Ég er komin með plan sem felur m.a. í sér ferð til...
- Sko ég var að pæla... Mér finnst soldið eins og ég...
- Við Ragnheiður fórum í bæinn á laugardaginn. Ég dr...

<< Home