Rakel Björk

Tuesday, March 07, 2006

Þvílíkur ískuldi hér í Köben brrr...
Fórum í verslunarmiðstöð í fyrradag því við þurftum að kaupa í matinn og finna nýja diska. Ég sem ætlaði ekki að kaupa neitt er búin að fylla töskuna og rúmlega það. Keypti samt ekkert handa sjálfri mér og það sem ég keypti er bara svo drullufyrirferðarmikið.
Í gær tók ég strætó og lest til að komast á strikið og það tókst! Ég fór aldrei í vitlausa átt eða neitt :) Á strikinu hitti ég Birki og vin hans Bjössa. Við fórum á fyrsta kaffihúsið sem við sáum til að fá heitt í kroppinn. Svo ákváðum við bara að skella okkur í keilu - það var hvort eð er ekkert vit í því að vera úti í þessum kulda. Rosalega sniðugt að hér er borgað fyrir klukkutímann en ekki fjölda umferða. Við náðum heilum þremur og unnu allir einu sinni. Svo þegar fjórða og síðasta hófst var ég þokkalega að rústa strákunum, öll fyrstu þrjú skotin fellur en hvað gerist, jú tíminn bara rennur út.
Bjössi hafði borgað keiluna fyrir okkur með visa og ætlaði ég svo að greiða honum með pening. Dróg fram 50 seðil og 25 í klinkirétti Bjössa. Svo spyr hann hvort það sé tekið við Evrum hér... jú jú kannski einhversstaðar svara ég. Er þetta ekki miklu meira en þú átt að borga? Nei nei þetta eru 75kr. Uhh en þetta eru þetta ekki Evrur? Ha nei nei er það? svara ég og svo kviknar ljós hjá ljóskunni og allt varð skýrt. Þetta voru 50 evrur!! Afi hafði gefið mér peninginn fyrir ferðina og mér fannst soldið fyndið að hann væri að gefa mér 50 danskar krónur en fannst það jafnframt mjög krúttað. Ég hafði líka reynt að greiða með peningnum í sælgætisverslun en maðurinn sagðist ekki geta tekið við honum og hélt ég að hann væri að meina að hann gæti ekki tekið við svo stórmu seðli en skildi ekki hvers konar aumingjabúð þetta væri að geta ekki skipt 50 dkr. Jamm það er víst satt og sannað að ég er legally blond hehehe :)

Um kvöldið var svo æfingakvöldverður. Ég kom með lambalundir frá Íslandi og eru Sigrún og Siggi að koma til okkar í mat á föstudaginn. Ég hafði keypt einn aukapakka og var hann matreiddur í gær svo við hefðum einhverja hugmynd um hvað við værum að gera áður en við færum að bjóða upp á það. Verð nú bara að segja að þetta var bara geggjað vel heppnað.
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com