Rakel Björk

Monday, May 01, 2006


Andreas(Noregi), Við Dana og Fransisco(Mallorca)
Í gærkvöldi var kveðjuparty. Nokkrir eru að fara heim til sín í vikunni og þar á meðal hannFransisco. Partyið byrjaði mjög rólega en endaði í algjörri vitleysu þar sem bjór var teigaður á amerískan hátt í gegnum slöngu. Ég var nú samt bara róleg og drakk nánast ekki neitt. Læsingin á herberginu mínu er soldið tricky og komst ég að því í gærkvöldi þegar ég komst ekki aftur inn í herbergið mitt og lyklarnir læstir inni. Einn gaur hérna átti að vera með master en lykillinn hans virkaði ekki. Herbergið var ekki opnað fyrr en hálfsex í dag og var ég þá búin að reyna ALLT til að komast inn! Fékk bara að gista hjá stelpunum.

Staðurinn Fort Pierce þar sem ég er er í sjálfu sér hálfsorglegur staður en hér í PanAm húsunum er samt æðislegt að vera. Það er fólkið sem skapar staðinn. Hérna er samankomið fullt af fólki, alls staðar úr heiminum, flest á svipuðum aldri, með allavega eitt sameiginlegt áhugamál og að vinna að svipuðum hlutum. Stemmingin er alveg æðisleg og allir svo opnir og tilbúnir að kynnast nýju fólki og nýjum hlutum. Þvílík forréttindi að fá að upplifa þetta :)

Núna er kaldur frontur að ganga yfir með öllu því roki sem honum fylgir. Ætla að mæta snemma í skólann á morgun en efast stórlega um að vélin verði komin úr skoðun. Spurning með að fá kennara til að tékka mig út á stærri vél. En ég ætla allavega að hanga eitthvað niðri í skóla og þá bara halda áfram að skoða google earth og svona fyrir langa flugið mitt.

Btw. Bruce Dickenson, hljómsveitarmeðlimur Iron Maiden, var í sama skóla og ég er í. Slúðrið hér segir að hann ætli sér að koma í heimsókn í sumar.
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com