

Jæja þá er ég komin heim frá Dk.
Á mánudaginn fórum við í dýragarðinn og vorum þar í rúma þrjá tíma. Ég vissi ekki að þetta væri svona flottur garður. Aðalástæðan fyrir ferðinni þangað var til að sjá mörgæsirnar.
Þegar við vorum nýkomin inn blöstu ljónin við okkur eins og þau væru að stilla sér upp fyrir fjölskyldumyndatöku. Við fórum svo í hús með regnskóg. Þar fengum við að gefa fuglum að borða. Við fengum lirfur og áttum að kasta þeim upp - einni í einu - því þessir fuglar geta bara borðað á flugi. Þetta var soldið sport og fuglarnir steyptu sér rétt yfir hausana okkar.

<< Home