Rakel Björk

Friday, March 10, 2006

Þvílíkt chill hjá mér í Köben. Fer venjulega ekki á fætur fyrr en um hádegi. Hverfið sem ég bý í heitir Herlev og er alveg slatta langt frá miðbænum. Hélt fyrst að hverfið héti Kagsaa en það er víst bara kollegíið sem heitir það. Betra að vita hvar mar býr. Það tekur minnst þrjú korter að komast niður í bæ. Til þess þarf að taka strætó og lest. Ég er svo áttavillt hérna en ég hef ekki ennþá villst. Hef farið úr strætó á vitlausum stað og svona en það er ekkert mál því þá er bara beðið eftir þeim næsta því þeir ganga svo ört hér á daginn.

Ég lofaði sjálfri mér að versla ekki neitt samt virðist ég alltaf koma heim með nokkra poka. Við endum líka alltaf í verslunarmiðstöð eða bænum. Enda alltaf í eins búðum, dótabúðum og búðum með eldhúsáhöld. Ég virðist hafa einhvern ólæknandi áhuga á eldhúsáhöldum sem er í raun stórfurðulegt því mér finnst svo leiðinlegt að elda. Við Birkir fórum um daginn með Bjössa vini hans í Fisketorvet sem er verslunarmiðstöð. Þar enduðum við þrjú í búsáhaldaverslun sem við ætluðum bara ekki að komast úr því það var svo margt spennandi. Þar hljómaði þessi setning oft - til hvers er þetta?

Ég kíkti í heimsókn til Elínar og Hödda í vikunni. Æðisleg íbúð sem þau eru í og alveg brilliant staðsetning. Mér fyndist að við ættum öll að stefna á sameiginlega Köbenferð og sjá hvort Elín væri ekki til í að vera með party! :)
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com