Það styttist alltaf meir og meir í USA ferðina. Á mánudaginn fer ég upp í loft og lendi átta tímum seinna í annarri heimsálfu. Fyrsta skipti sem ég fer út fyrir Evrópu. Mamma er alltaf að bæta í ferðakittið mitt og í dag keypti hún mini-baðendur til að taka með.
En svona fyrir þá sem hafa áhuga þá er þetta það sem ég verð að gera...
Þegar ég kem til USA þá þarf ég fyrst að taka nokkra tíma með kennara og svo prófdómara til að ég megi fljúga ein í Bandaríkjunum því einkaflugmannsskírteinið mitt er evrópskt.
Því næst þarf ég að safna upp í 150 tíma til að mega byrja á verklega atvinnuflugnáminu. Er með 90 núna.
Verkelga flugnámið er aðallega flug með kennara þar sem hann lætur mann gera alls konar æfingar. Svo þarf ég líka að fljúga í flughermi til að læra að fljúga algjörlega eftir tækjunum, án þess að horfa út um glugga. Það er líka æft á alvöru lifandi flugvél.
Þegar þetta er komið þá fer ég til Bretlands þar sem ég flýg einhverja tíma til að fínpússa hlutina áður en ég fer í verklegu prófin. Prófin eru tekin í Bretlandi til að ég fái evrópskt skírteini svo ég geti fengið vinnu hjá evrópsku flugfélagi. Bandarísk flugskírteini gilda bara í Bandaríkjunum svo ég hef lítið við svoleiðis að gera nema ég ætli að flytja þangað forever.
Þegar þessi pakki er búinn þá má ég sækja um hjá flugfélögum sem flugmaður . Mörg flugfélög gera hins vegar kröfur um a.m.k. 500 flugtíma svo ég þarf að fljúga upp í þann tímafjölda til að geta fengið vinnu.
Svo þannig er nú það.
Smá pæling... Ef ég væri karakter í Ástríksbókunum þá héti ég örugglega Ráðrík og væri dóttir höfðingja þorpsins. Væri með fléttur í hárinu með rauðum slaufum og alltaf í ljósbláum kjól og héldi á bastkörfu. Veit samt ekki hvað væri í körfunni.

<< Home