

Mér finnst myndirnar af rauðu flugvélinni svo flottar að mig langar eila ekkert að setja inn nýtt blogg því það ýtir myndunum neðar á síðuna. En það gerist svo margt hérna að ég verð að blogga reglulega til að koma hluta af því til skila.
Okkur Ingu langaði til að spila tennis og fórum því um daginn og keyptum okkur tennisföt. Til að setja punktinn yfir i-ið þá fengum við okkur tennisder. Ég fékk mér ljósblátt í stíl við skóna og hún rautt í stíl við restina af sínu dressi. í dag spiluðum við svo ljósbláa liðið, ég og Andreas á móti rauða liðinu, Ingu og Chris. Við töldum engin stig heldur hversu lengi við gátum fleytt boltanum yfir netið. Við tókum okkur svo pásu og fórum í dýralífsleiðangur. Sáum skjaldböku og ég bara varð að prófa að halda á henni og svo er líka aligator í tjörninni hérna við húsin. Það var krókódíll líka en það er búið að taka hann. Mér finnst stundum eins og ég sé stödd í miðjum dýragarði eða dýralífsþætti með David Attenborugh. Á kvöldin er varla þverfótað fyrir froskum á göngustígnum og ég geng ekki yfir grasið þegar það er nýbúið að rigna því þá er svo mikið af slöngum. Að ég tali nú ekki um allar köngulærnar og önnur skordýr. Um daginn sá ég slöngu vera að éta lítinn frosk. Hún beit hann að aftan svo fremri hlutinn stóð út og hann var enn á lífi. Gaf frá sér skrík hljóð og reyndi að toga sig lausann, frekar óhugnalegt en bara náttúran að verki.

<< Home