
Takk kærlega fyrir öll ráðin gegn pöddunum. Hugsa að ég sé orðin alveg ágætlega v0pnuð gegn þeim. Allir gellustælar foknir í veður og vind enda takmörkuð pína sem ég er til í að leggja á mig til að vera pæja.
Ég er loksins byrjuð í CPL náminu. og er alveg rosalega ánægð með kennarann. Var komin með svo mikið leið á tímasöfnununni, fljúgandi ein liggjandi á klukkunni en núna flýgur tíminn áfram. Er búin að fara í tvö flug með kennaranum mínu. Erum að gera alls konar æfingar og markvisst að þjálfa upp flugstjóratakta. Agi, agi, agi og aftur agi er grunnur alls í þessum flugum. Ég var svo einbeitt í fyrsta fluginu mínu að ég sagði varla múkk og kennarinn hélt fyrst að ég væri svona stressuð en hann er að læra inn á mig og hitti naglann á höfuðið í dag þegar hann sagði að ég væri greinilega fullkomnunarsinni því þegar ég á að halda t.d. 59 kt hraða þá vil ég vera á 59 en ekki 58 eða 60.
Kíkti í pósthólfið mitt í skólanum í dag og við mér blasti glaðningur. Póstkort frá Brynju og bréf frá Helgu. Takk stelpur!!! Ég veit ekki hversu lengi þetta hefur verið á leiðinni því það getur verið að þetta hafi legið þarna í einhvern tíma.
Köngulóin á myndinni datt á jörðina þegar ég var að losa eitt bandið sem flugvélin er bundin í á jörðinni. Hún er alveg lófastór og mér brá ekkert smá!
Þarf að læra svo ég verð bara að segja frá Orlando á morgun

<< Home