Rakel Björk

Wednesday, May 10, 2006


Þessi texti birtist þegar ég hneppi frá nýju gallabuxunum mínum. Tók ekkert eftir þessu í þegar ég keypti þær og finnst þetta geggjað fyndið.
Ég hef aldrei áður farið jafnoft í bíó og ég geri núna. Síðasta mynd sem ég sá var Mission Impossible III. Strákunum fannst myndin of rómantísk en hafa það fram yfir hinar myndirnar að vera með smá söguþráð sem snýst um persónu Tom Cruise og unnustu hans sem er alveg merkilega lík Katie Holmes.
Í dag þurftu allir nemendur skólans að sitja fund á vegum öryggidæmis frá Orlando. Þetta var alveg ágætlega fræðandi en heldur langt.
Byrja í CPL náminu í næstu viku. Er búin að tala við kennarann og hann getur ekki byrjað að kenna mér fyrr en þá því hann er að fara til Kilago í brúðkaup um helgina. Svo fer ég til Orlando á mánudaginn með ágætisgrúppu og kem heim á þriðjudaginn svo ég býst við að ég byrji á CPLinu á miðvikudaginn. Þar sem það tók mig mun lengri tíma að safna tímunum en ég bjóst við þá er lítur allt út fyrir að ég þurfi að framlengja dvöl mína hérna og komi ekki heim fyrr en í byrjun júlí. Mamma og pabbi koma 9 júní og vona ég að ég geti tekið allavega seinni vikuna alveg í frí með þeim.

Flugtímar 148.4
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com