
Ætli það hafi ekki verið kominn tími á að skella inn mynd af sjálfum sér í fluggallanum, spurning með að taka eina í uniforminu næst. Þessi er nú samt bara tekin á jörðinni.
Síðustu dagar eru búnir að vera soldið erfiðir því ég týndi sjálfstraustinu, það virðist hafa splundrast út um allt svo ég er að finna smá brot hér og þar en þetta er allt að koma og púslið farið að taka á sig mynd. Ég er bara alltaf allt of hörð á sjálfa mig.
Flugið í dag var þvílíkt hopp og skopp. Það var rosalega heitt í veðri og þegar það er þá myndast ókyrrð vegna mismunandi hitauppstreymis frá mismunandi yfirborði. Að fljúga yfir skógivaxið land í svona miklum hitar er eins og að fara í rússíbana. Það var frekar hvasst þegar ég fór í loftið en samkvæmt veðurspánni átti vindinn ekki að hvessa. Vindurinn var vel innan marka þegar ég fór í loftið en þegar ég kom inn til lendingar hafði hann breytt um stefnu og styrkst, var orðinn 17 hnútar með 22kt (kt-hnútar) vindhviðum og kom úr 130 gráðum (stefnan). Braut 09 var í notkun og þýðir þetta að hliðarvindscomponentið var tæpir 15kt en vélin mín má aðeins hafa 13kt hliðarvind. Ég óskaði eftir að lenda á braut 14 (sem gefur 4kt hliðarvind) og tók flapalausa lendingu sem gekk virkilega vel. Þurfti að fljúga yfir smá skóg á lokastefnu og var það eins að keyra traktor í þúfum.
Í gærkvöldi var strandparty skipulagt af flugskólanum og endaði það í þvílíku fylleríi heima hjá Xidani. Þeir sem áttu að vera bílstjórar og keyra heim enduðu í vitleysunni svo allir þurftu að gista. Þegar bjórinn var búinn var bankað upp á hjá nágrönunum og bjórinn þeirra kláraður líka. Það voru allir í rosagóðum gír og þetta var alveg virkilega skemmtilegt :)
Þegar við vorum að keyra af ströndinni og heim til Xidanis stoppuðum við á rauðu ljósi og við hlið okkar einn kennarinn á bíl sem er mjög öflugur. Hann var aðeins espaður upp og reykspólaði við mikla hrifningu allra... nema löggunnar sem kom out of nowhere brunandi og skellti sírenunum á. Kennarinn fékk 80 dollara sekt fyrir excessive use of power. Þetta er nú frekar töff sekt, ég meina það geta ekki allir fengið sekt fyrir excessive use of power hehe.
Flugtímar 143,4

<< Home