Rakel Björk

Friday, November 07, 2008

Ég held ég sé að fatta það af hverju Íslendingar eru alltaf mun óstundvísi en aðrar þjóðir. Við þurfum ekki að skipuleggja okkur jafnmikið í kringum aðra og aðrar þjóðir. I húsinu sem ég bý er fínt þvottaherbergi en ég þarf að panta mér tíma, skrifa niður hvenær ég ætla að þvo þvottinn minn og ef ég nýti ekki þann tíma þá er ekkert víst að ég geti þvegið bara þegar mér hentar. Svipað er með almenningssamgöngur. Lestin fer á vissum tíma og ef þú ert ekki komin um borð þá fer hún án þín. Heima eru hinsvegar flestir á einkabílum og geta því lagt af stað nákvæmlega þegar þeim hentar þar sem bíllinn fer lítið án ökumannsins.

Vá hvað Skype er mikil snilld. Föstudagar eru fjölskyldudagar þar sem við hittumst öll og borðum pizzu saman. Áðan var ég með vefmyndavélina að tala við alla og Hildi Emmu fannst þetta einstaklega sniðugt. Hún plantaði sér fyrir framan myndavélina og sagði aka, aka sem á að þýða Rakel, Rakel og lék á alls oddi.
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com