Rakel Björk

Sunday, November 09, 2008

Veit ekki alveg hvað er að gerast með mig. Ég á að vera að lesa og lesa en sofna alltaf eftir 10 mín lestur. Á að fljúga einni þotunni okkar á þriðjudaginn og er að reyna að fara yfir verklagsreglur en held engri einbeitingu. Það er mjög ólíkt mér þegar um svona mikilvægan hlut er að ræða og eitthvað sem skiptir mig svo miklu máli. Vona að ég hrökkvi í gírinn ekki seinna en strax.
Annars þá er búið að setja upp fullt af jólaskreytingum á flugvellinum hér. Voru ekkert smá snöggir, en skreytingarnar eru smekklegar og fallegar.

Er að reyna að byrja að vera soldið hollari en ég var heima, fara fyrr á fætur, borða minna nammi og svona. Þetta gengur svo og svo. Ég borða minna af nammi en kaupi þess í stað ferska ávexti á hverjum degi en þetta með að fara snemma á fætur virðist ekki vera séns hjá mér. Get bara ómögulega farið snemma á fætur því ég er svo ógeðslega mygluð á morgnanna. Ef ég fer snemma að sofa þá tekst það en ég ér í mínu optimum eftir miðnætti og er því ekkert að fara að sofa þá. Ætla líka að takmarka sjónvarpsgláp við þrjá þætti á dag - getur ekki verið hollt að horfa á meira. Svo er planið að kaupa lonley planet um Stockholm og túristast - Svona er planið en við skulum sjá til hversu dugleg ég verð að fylgja því :)
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com