Það styttist í að Thelma komi í heimsókn. Þá verður stuð! Ég er búin að halda í mér að versla þangað til hún kemur og er núna alveg í verslunarspreng.
Ég er nýkomin úr flugi og er ógeðslega þreytt. Þetta flug var samt voða nice. Við stoppuðum í Tyrklandi í 11 tíma og það var alveg brjáluð sól og hiti. Ég hafði ekki nennt að pakka niður áður en ég fór að sofa sem þýddi að þegar ég var að henda ofan í töskuna um nóttina fyrir flugið þá gleymdi ég auðvitað að pakka bikiniinu - ég var því ógeðslega kúl í sólbaði á náttfötunum. Ég virðist, alveg óvart, vera búin að koma af stað trendi hjá áhöfninni hérna. Allir, flugmenn og flugfreyjur eru farin að nota orðið já. Ég hef aldrei komist upp á lagið með að segja a eða o eins og svíarnir í staðin fyrir já. Þeim fannst þetta voða fyndið fyrst en núna finnst þeim þetta rosa töff. Held að þeir séu líka búnir að átta sig á því að já er mun kraftmeira en a eða o. Ég legg mig mikið fram við að ná sænskunni og er ófeimin við að prófa að segja ný orð sem oft vekur mikla kátínu hjá áhöfninni, sérstaklega þegar ég segi orðin með svo vitlausri áherslu að þau þýða eitthvað dónalegt - þá skellihlæja þau og ég hef ekki hugmynd um af hverju ég er svona fyndin.
Hvað er annars að frétta af Íslendingunum á klakanum? Það eru allt of margir sem ég hef lítið sem ekkert heyrt í síðan ég flutti út - ég er bara í símtalsfjarlægð ;)

<< Home