Rakel Björk

Monday, September 21, 2009


Spurning um að vekja þetta blogg til lífsins svo að Íslendingarnir á klakanum geti fylgst með því sem er að gerast hjá mér hér í Svíþjóð. Þessi helgi er búin að vera tær snilld. Fyrst var sumarbústaðaferð í skerjagarðinn með öllu tilheyrandi, grilli, varðeld, saunu, sjóbaði og rosa skemmtun. Næsta kvöld var Íslendingaparty og á sunnudagskvöldið var ákveðið að nýta góða veðrið og grilla heima hjá mér.
Það fer að styttast í sumarlok. Sumarið er búið að vera vel heppnað. Ég hef fengið margar heimsóknir. Mamma og pabbi voru fyrst til að mæta á svæðið þegar þau komu í maí. Óskar frændi gisti svo hjá mér með fjölskylduna sína. Eva, Stefán og Hildur Emma komu í byrjun ágúst, Rásta í lok ágúst. Haffi hélt upp á afmælið sitt í helgarferð í september og núna voru Helga og Bjarni að yfirgefa bælið til að halda aftur heim á klakann. Thelma og vinkona hennar Inga Sjöfn koma á MUSE í lok okt.
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com