Veturinn mætti á svæðið 1,2 og 23 hér í Stokkhólmi. Það var sumarkjólaveður út september en núna er búið að draga vetrarkápurnar fram. Ég vil helst fá almennilegan vetur með snjó og skella mér á skíði. Það er komið í gang alveg hellings prógram hjá mér fyrir veturinn. Á mánudögum eru kóræfngar og föstudögum er spilað bandý. Stelpurnar spila bandý frá fimm til sex og strákarnir frá sex til sjö sem passar perfect því þá getum við gellað okkur upp á meðan strákarnir spila. Eftir bandýið er farið á pizzastað og endar kvöldið oft á partýi. Svo ætla ég að vera dugleg í ræktinni en hún vill soldið gleymast hjá mér. Það er plönuð hópferð á MUSE tónleikana og gelgjuferð á hina brilliant Backstreet boys sem munu spila í Stokkhólmi 4. desember :) Já það er gaman að búa í Stokkhólmi.
Contributors
Previous Posts
- Ég þyrfti að fá mér photoshop svo ég gæti gert þes...
- Spurning um að vekja þetta blogg til lífsins svo a...
- Home sweet home! I was scheduled to go home late t...
- It has been raining non-stop and heavily here in S...
- I am so lazy that it is not even funny. I am in my...
- A friend of mine once said to me that it must be f...
- Part of the choir I sing with here in Stockholm J...
- The other day I flew to Tampa International. Oh my...
- Familiar setting - a barbeque and a beer.Miami Th...
- My controls Preflight in Immokalee. I was checkin...

<< Home