Rakel Björk

Tuesday, November 24, 2009

Myndin er tekin í áhafnarstoppi á Fuerteventura, Kanarýeyjunum. Við í áhöfninni náðum svo vel saman að það var endalaus gleði þessa þrjá daga sem við vorum saman. Strákarnir redduðu sér brimbrettum og hentu sér út í stóru öldurnar á meðan við stelpurnar horfðum á. Eitt skiptið urðum við soldið hræddar þegar annar þeirra fór á stóra öldu sem brotnaði og bara brettið skaust út úr öldunni en við sáum hann hvergi. Fólk á ströndinni hljóp líka til, en þá hélt hann sér á botninum þar til aldan væri búin til að meiðast ekki. Hann kom svo upp úr öldunni á allt öðrum stað en hann fór inn í hana. Þessar öldur voru of stórar fyrir byrjendur, annars hefði ég líka skellt mér útí. Í fluginu á leiðinni heim var ég kynnt fyrir farþegum sem íslenska prinsessan. Ég tók bleikan kaffibolla og bjó til kórónu úr honum og festi á hausinn með hárspennu. Ég þorði reyndar ekki að hafa hana á hausnum innan um farþega því þá væri ekki séns að þeir gætu tekið mig alvarlega heldur gantaðist bara með áhöfninni.
Ég fékk rosalega miklar gleðifréttir! Ég kemst heim um jólin :) Kem heim á aðfangadag og fer aftur að morgni 29 desember. Ég veit ekki hversu mikið ég á eftir að hitta fólk því mig langar svo að eiga góðan tíma með ömmu og afa og familíunni. Jólamiðinn var í dýrari kantinum svo jólagjafirnar verða ekkert risa í ár.
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com