Rakel Björk

Monday, June 19, 2006


Það er víst kominn tími á nokkrar línur hérna. Mamma og pabbi eru komin og farin. Það var ofsalega gaman að hafa þau og geta sýnt þeim hvað ég er að gera hérna. Vildi bara að það hefði verið hægt að nýta tímann betur en það er soldið erfitt þegar veður og vindar ráða för. Þeim líkaði staðurinn vel og pabbi vill held ég helst flytja hingað. Þau voru hins vegar með hótel í Orlando sem er æðisleg borg og væri ég alveg til í að fara þangað aftur og langar rosalega mikið til að djamma þar. Æðislegt að labba eftir International Drive á kvöldin eftir að hafa borðað yfir sig á einhverju veitingahúsinu. Mamma og pabbi eiga ekki orð yfir það hvað ég borða mikinn mat. Pabbi hélt að hann gæti fengið afgang af einni steikinni minni en glætan að ég leifi Cajun Ribey steik á Chilis á hváði hann af undrun við hvern bita sem rataði upp í mig eftir að steikin var hálfnuð. Við fengum líka blöðrumanninn á Chilis til að gera fiðrildi fyrir mig. Ég á því miður engar almennilegar myndir af heimsókn mömmu og pabba því pabbi var yfirleitt með myndavélina sína á lofti.
Í gær var 17. júní og buðum við Íslendingarnir upp á kósýheit og íslenskt nammi í tilefni dagsins. Okkur Ingu finnst báðum rosa gaman að dressa okkur upp og notum hvert tækifæri til þess og vorum voða sætar og fínar í kjólunum okkar. Á myndinni eru þau með blöðrurnar sem við létum seta helium í og "þurfti" þrjá starfsmenntil þess.

Það fer að styttast í flugprófið hjá mér þó mér finnist ég engan vegin tilbúin í það en ég tek bara eitt flug fyrir í einu og ætla bara að gera mitt besta. Hlakka rosalega til að vera búin því þessu fylgir stöðug pressa.

Nú eru bara 18 dagar þar til ég kem heim. Er farin að hlakka til en á jafnframt eftir að sakna allra hérna alveg svaaaaakalega mikið. Kem heim morguninn 7. júlí og er stefnan að hitta alla familíuna, fara í heimsókn til ömmu í Fossó og knúsa Ragnheiði og Jón Bjarna áður en ég held í sumarbústaðaferð seinna um daginn þar sem ég vonast til að hitta sem flesta úr saumaklúbbnum.
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com