Takk fyrir allar hamingjuóskirnar :)
Daginn eftir að ég kláraði cpl-ið byrjaði ég að læra á fjölhreyfla vél. Á þriðja degi, eftir fimm flug sem samtals voru 5,8 tímar, var mér skellt í multiprófið. Náði því og er því komin með multiratingu. Þetta voru rosalega skemmtileg flug og ég er mjög ánægð að hafa náð nógu góðum tökum á nýrri gerð af vél til að hægt væri að senda mig strax í próf. Skólastjórinn kenndi mér á vélina og sagði við prófdómarann áður en við fórum í loftið að ég ætti eftir að wowa hann með lendingunum mínu svo það var eins gott að standa undir nafni :)
Við skelltum okkur á djammið í gær og dansaði ég af mér lappirnar svo var tennisleikurinn minn í morgun, korteri eftir að hafa farið á fætur skellti ég mér á völlinn og gat ég hvorki náð sambandi við lappirnar né hausinn því það tekur mig sko aðeins lengri tíma en korter að vakna en þetta var allt saman rosalega gaman.

<< Home