Rakel Björk

Monday, July 07, 2008

English version below
Ég náði prófinu en shitt hvað það var erfitt. Lagði mig alla fram og var eiginlega búin að lesa yfir mig því ég var komin með alveg nóg af flugvélapælingum. Ég sagði við Thelmu systur að mig langaði ekkert að fara í flugvél heim og ég ætlði bara að koma heim til Íslands með skipi. Er núna komin heim og það er svo gott enda var ég komin með heimþrá sem er ekki algengt.
Þessi mánuður sem ég var úti var sumarfríið mitt svo núna er ég byrjuð að vinna og flýg sem fyrsta freyja sem þýðir að ég er yfirfreyja í hverju flugi fyrir sig - ábyrgð og áskorun.
Ég er nýkomin frá Trieste þar sem ég var í sólarhring. Það var mjög heitt. Flugstjórinn er gamall töffari með fullt af skemmtilegum sögum. Við fórum nokkur út að borða um kvöldið og tókum m.a.s. nokkur gömlu dansa spor. Borðuðum og vorum borðuð. Er núna öll út í moskítóbitum og það er ekki fallegt. Ég keypti sundlaug í stórmarkaðinum. Hún er frekar stór 366cm í þvermál og það fylgdi stigi með til að klifra í hana. Það var frekar fyndið að sjá mig á háum hælum í flugfreyjukjólnum að rogast með sundlaugina.

I passed the check-ride, it was the tuffest I have ever taken. I did my best to prepare and kind of overdozed of airplaneinformations. I told my sister that I was so fed up with airplanes that I was just going to come home to Iceland with a ship. I am home now and it is so nice. I had been homesick which does not happen often.
The month I was away was my summervacation so now I am back to work. I work as a seniour which is a responsibility and challenge.
I just came from Trieste where I was for a 24hour layover. It was very hot, a bit too hot for me. The Captain is a really cool guy and had alot of good stories to tell. Some of us went out for dinner in the evening and even danced old dances. We ate and were eaten. I am now all spotty of moskitobites. I bought a swimmingpool in the supermarket in Trieste. It is 366cm in diameter and has stairway included because it is 91cm in height. It was rather funny to see me in high heals and the flight attendant uniform struggling with the huge swimmingpool :)
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com