Núna get ég í alvöru kallað mig þotuflugmann því um daginn flaug ég einni af þotunni okkar. Ég þarf að taka sex flugtök og lendingar til að fullgilda skírteinið mitt. Við vorum fimm flugmenn að æfa okkur á vélinni. Ég var síðust og minnst reynd. Veðrið var of erfitt fyrir mig, sterkur vindur, miklir gustar og lágskýjað. Ég á eftir eitt flugtak og lendingu. Geri það 18 nóv, svo ef þið verðið á Malmö svæðinu þá, horfið til himins og verið með hjálma ;)
Ég get verið óttalegur sauður. Fattaði það ekki fyrr en eftir flugið i gær að úrið sem ég var með var á íslenskum tíma, var alveg vissum að ég væri með það á sænskum tíma. Greyið farþeginn sem spurði mig hvað klukkan væri á sænskum tíma, vona að hann hafi ekki átt tengiflug eða áttað sig á því að ég var bara rugluð.
Í pásunni í fluginu fór ég fram í til flugmannanna og bað um að fá að sjá log-bók flugvélarinnar. Í hana eru nöfn áhafnarmeðlima skráð, stöður þeirra og flugtímar. Þeir spurðu hvort mig vantaði flugtímana mína frá fluginu deginum áður en ég sagði nei ég vildi bara sjá flugið mitt því mér findist svo töff að sjá mig skráða sem flugmann. Þeir hlógu ekkert smá hátt og mikið.

<< Home