Ragnheiður skvís bestasta skinn er farin heim eftir vel heppnaða heimsókn Við erum búnar að vera vinkonur frá því við munum eftir okkur. Erum rosalega ólíkar en samt soldið líkar. Það var æðislegt að fá hana í heimsókn, tíminn leið bara allt of hratt.
Annars tókst mér að læsa mig svona líka svakalega úti. Það er þvottadagur hjá mér í dag og ég á leiðnni í þvottahúsið með óhreina tauið. Ég hendi á eftir mér hurðinni en hugsa svo shitt og reyni að grípa hana en - klikk- dyrnar lokast og lyklarnir hanga á hurðahúninum hinu megin. Ég stóð því á ganginum á náttfötunum, símalaus og alls laus og læst úti. Þurfti að banka upp á hjá nágrönnunum til að fá að hringja í lásasmið því ég man ekkert númerið hjá þeim sem eru með aukalykilinn minn. Spurning um að fara að læra mikilvægustu símanúmerin. Lásasmiðurinn kom eftir hálftíma, tók hann 2 mín að opna og fyrir það borgaði ég aðeins 1200 sek!

<< Home