Það er annsi mikill frítími hjá mér hér í Stokkhólmi. Núna er ég farin að gera tékklista á kvöldin yfir það sem ég ætla að gera næsta dag til að halda mér upptekinni. Það er svo auðvelt að leggjast í leti en mér líkar mun betur að hafa eitthvað að gera. Þá fær mar svo mikið meira úr lífinu. Á mánudögum fer ég á kóræfingar. Kórinn er fyrir alla og það mæta u.þ.b. 250 manns á hverja æfingu. Það er engin brjáluð alvara í þessu og allt í lagi að missa úr æfingu. Þetta er meira til að hittast og syngja saman. Sungin eru popplög sem allir kunna. Svo þarf ég bara að hætta að finna afsökun til að fresta kaupum á kroti í ræktinni og þá verð ég orðin vel sett.
Tölvan og myndavélin hafa ekki viljað vinna saman svo mér hefur ekki tekist að hlaða inn neinum myndum. En ég hlýt að geta reddað því fljótlega.
Ég fæ íbúðina á Kungsholmen um næstu helgi og hlakka rosalega til. Það verður svo gott að geta gengið frá dótinu í skúffur og skápa. Þar sem ég er núna er ekki pláss fyrir dótið mitt í skápunum svo ég er með það allt í ferðatöskunum sem er annsi þreytandi til lengdar.

<< Home