Rakel Björk

Friday, January 09, 2009

Já það er sko erfiðara að finna íbúð hérna í Stokkhólmi heldur en mig hafði grunað. Sem betur fer bý ég svo vel að eiga vini hérna sem hýsa mig þar til ég fæ íbúð. Ég er búin að liggja á netinu, hringja og senda fullt af emailum og loksins tókst það. Á mánudaginn verður skrifað undir leigusamning. Sú íbúð er á Kungsholmen, nánar tiltekið Kristineberg og það er u.þ.b. 10 mín þaðan með lest niður í miðbæ. Þegar ég kom að skoða íbúðina sagði leigjandinn mér að það hefðu c.a. 100 manns svarað auglýsingunni hennar en hún hefði pikkað mig út. Það gerði ábyggilega gæfumuninn að ég sendi inn meðmæli frá vinnunni. Íbúðin er laus nú þegar en í gær gekk ég frá skammtímaleigu á annarri íbúð, til þriggja vikna og sú sem leigir íbúðina á Kungsholmen er svo góð að hún ætlar að halda íbúðinni fyrir mig þar til stutti samningurinn rennur út og ætlar ekki einu sinni að láta mig borga aukalega. Hún var að flytja inn til kærastans síns og íbúðin búin að standa auð í nokkra mánuði og mér heyrist á henni að það skipti hana meira máli að hafa góðan leigjanda en að fá borgað strax. En ég ætla að halda puttunum krossuðum þar til undirskriftin er komin í hús. Vona að hún setji það ekki fyrir sig að ég hafi ekki sænska kennitölu.
The íbúð er 44fermetrar 1.5 herbergi. Hún er með húsgögnum og búsáhöldum. Í kjallara hússins er svo sauna :) Allir velkomnir í heimsókn!

Annars er ekki mikið að frétta af mér. Hef setið sveitt fyrir framan tölvuna í íbúðaleit. Er búin að vera með flensu en er laus við hita núna, hóstinn að mestu farinn og horið er að skána. Fór slöpp í flug og úff hvað það var heimskulegt af mér. Fékk illt í eyrun, hellur og var eiginlega bara hálfur starfskraftur - en ég lærði mína lexíu.

Kem heim í helgarferð 15 til 18 jan - hlakka til að sjá sem flesta :)
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com