Alveg er ég orðin þreytt á þessari fjármálakrísu heima og ég er ekki einu sinni á landinu. Ég var svo "heppin" að megnið af peningnum mínum eru dollarar en þeir eru á íslenskum reikningi. Núna hef ég hef ég farið mjög samviskusamlega með peningana mína, lagt til hliðar, ekki eytt um efni fram og eina sem ég hef fengið lánað fyrir er námið mitt. Mér þykir það algjörlega óþolandi að út af einhverju öðru liði sem ekki vann vinnuna sína eða var úr hófi gráðugt þá má ég ekki fá peninginn minn, pening sem ég á og er búin að vinna mér fyrir. Núna er ég að spá í að fara til Bandaríkjanna til að safna flugtímum, til þess hafði ég sparað dollarana, en það er óvíst að ég geti gert það því ég veit ekki hvort ég fæ peninginn minn. Ekki misskilja mig, ég er ekki í peningavandræðum að öðru leiti en því að mér finnst óþolandi að fá ekki að ráðstafa mínum eignum.
Contributors
Previous Posts
- Ég held ég búi í Disney-landi. Það er búið að snjó...
- Ilmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi, er svo lokk...
- Oh my oh my alltaf bætist í ævintýrasafnið mitt. Í...
- Núna get ég í alvöru kallað mig þotuflugmann því u...
- Veit ekki alveg hvað er að gerast með mig. Ég á að...
- Ég held ég sé að fatta það af hverju Íslendingar e...
- I have arrived in Stockholm. My mom´s sister picke...
- It is a strange thought that same time next week I...
- Since I am now dooing everything except what I sho...
- En skrítnir tímar sem við erum að upplifa. Gordon ...

<< Home